Íslandsmeistaralið Vals fær liðsauka á næstu dögum frá Danmörku en Rasmus Hansen mun ganga í raðir Hlíðarendaliðsins. Á fréttavef danska ríkisútvarpssins er greint frá því að Hansen hafi komist að samkomulagi um starfslok sín hjá danska liðinu Randers.
Hansen, sem er 29 ára gamall, átti hálft ár eftir af samningi sínum við félagið. Hansen lék 98 leiki Randers á undanförnum fimm árum og skoraði hann 3 mörk á þeim tíma en tímabilið 2004-2005 fór í súginn hjá honum vegna hnémeiðsla.