Fram sigraði HK, 2:0, í 2. umferð Landsbankadeildar karla á Laugardalsvellinum í kvöld og er því með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. HK er hinsvegar án stiga eftir tvo leiki.
Staðan var 0:0 í hálfleik en strax í byrjun síðari hálfleiks skoraði Heiðar Geir Júlíusson með skalla eftir fyrirgjöf Daða Guðmundssonar. Ívar Björnsson bætti við marki á 65. mínútu, 2:0, eftir hornspyrnu frá Sam Tillen og þar við sat.
Finnur Ólafsson var næstur því að minnka muninn fyrir HK en hann átti þrumuskot í þverslána og niður á marklínuna. Mitja Brulc fylgdi á eftir og skoraði með skalla en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Lið Fram: Hannes Halldórsson, Reynir Leósson, Auðun Helgason, Sam Tillen, Daði Guðmundsson, Ingvar Ólason, Heiðar Geir Júlíusson, Halldór H. Jónsson, Paul McShane, Ívar Björnsson, Hjálmar Þórarinsson.
Varamenn: Hlynur Magnússon, Óðinn Árnason, Joe Tillen, Guðmundur Magnússon, Jón Guðni Fjóluson, Jón Orri Ólafsson, Ögmundur Kristinsson.
Lið HK: Gunnleifur Gunnleifsson, Stefán Eggertsson, Finnbogi Llorens, Hólmar Örn Eyjólfsson, Hörður Árnason, Goran Brajkovic, Þorlákur Hilmarsson, Finnur Ólafsson, Aaron Palomares, Mitja Brulc, Hermann Geir Þórsson.
Varamenn: Atli Valsson, Almir Cosic, Ásgrímur Albertsson, Hörður Magnússon, Eyþór Helgi Birgisson, Calum Þór Bett, Ögmundur Ólafsson.