Breytingar vegna landsleiks við Wales

Stefán Þórðarson.
Stefán Þórðarson.

Vegna vináttulandsleiks Íslands og Wales í knattspyrnu á miðvikudaginn kemur hefur verið gerð smávægileg breyting á niðurröðun leikja í fjórðu umferð Landsbankadeildarinnar.

Tveimur leikjum hefur verið víxlað vegna þess að Skagamaðurinn Stefán Þ. Þórðarson er í landsliðshópnum og ÍA átti að leika við Keflavík á mánudaginn, tveimur dögum fyrir landsleikinn.

Leikurinn hefur verið færður af mánudeginum til sunnudagsins og hefst í Keflavík klukkan 19.15 og leikur Breiðabliks og Grindavíkur hefur verið færður af sunnudeginum til mánudagsins og hefst hann á Kópavogsvelli klukkan 20.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert