Ólafur Þórðarson hefur gefið HK afsvar um að taka við þjálfun liðsins. Félagið hafði verið í viðræðum við Ólaf í dag um að taka við starfinu af Gunnari Guðmundssyni sem vikið var úr starfi í gær. Ólafur hafnaði hins vegar að taka við liði HK. Hann þjálfaði síðast lið Fram í fyrra en hefur áður þjálfað lið ÍA og Fylkis.
Ekki er ljóst á þessari stundu hver mun taka við liði HK en forráðamenn félagsins eru sagðir í viðræðum við ákveðinn aðila sem ekki hefur verið nafngreindur.