„Nei, ég hef nú eiginlega ekki séð það svartara en það er alltaf eitthvað til að takast á við og þetta er greinilega alveg ný áskorun,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir tapið fyrir Fjölni í gær.
Hann segir í Morgunblaðinu í dag að mótlætið sem Skagamenn mæti sé göldrum líkast en hefur þó ekki fengið seiðkarl til að klóra upp einhverja galdra.
Leifur Sigfinnur Garðarsson, þjálfari Fylkis, fagnaði þremur dýrmætum stigum er liðið heimsótti FH-inga í Kaplakrika.
Allt um Landsbankadeildina í Morgunblaðinu í dag. Það er meira í Mogganum.