Í dag var gengið frá félagaskiptum hjá Sinisa Valdimar Kekic úr Víkingi R. yfir HK og hann mun því spila með Kópavogsliðinu í úrvalsdeildinni út þetta keppnistímabil.
Eins og áður hefur komið fram hefur Kekic ekkert leikið með Víkingum síðan í þriðju umferð 1. deildarinnar og hann hefur æft sjálfur frá þeim tíma. Kekic er 38 ára gamall og hefur skorað 50 mörk í 175 leikjum í efstu deild með Grindavík og Víkingi. Í fyrra gerði hann 8 mörk af þeim 15 sem Víkingar skoruðu í Landsbankadeildinni.