Sonur Guðjóns hættur með ÍA

Frá viðureign ÍA og Vals í Landsbankadeildinni.
Frá viðureign ÍA og Vals í Landsbankadeildinni. mbl.is//Gísli Baldur Gíslason

Atli Guðjónsson hefur fengið sig lausan undan samningi við ÍA en stjórn knattspyrnufélags ÍA varð við beiðni leikmannsins að því er fram kemur á heimasíðu félagsins. Atli er tvítugur og hefur komið við sögu í 3 leikjum Skagamanna í Landsbankadeildinni í sumar en hann er sonur Guðjóns Þórðarsonar sem leystur var frá störfum sem þjálfari ÍA í fyrradag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert