Ingimundur til Fylkis

Kjartan Ágúst Breiðdal og félagar í Fylki hafa fengið Ingimund …
Kjartan Ágúst Breiðdal og félagar í Fylki hafa fengið Ingimund Óskarsson til liðsins frá KR. mbl.is/Hilmar Þór

Meistaraflokkur karla hjá Fylki í knattspyrnu hefur bæst liðsstyrkur, en Fylkir hefur fengið til sín Ingimund Níels Óskarsson frá KR. Ingimundur sem er 22 ára er uppalinn hjá Fjölni í Grafarvogi en lék raunar eitt tímabil með Fylki í 2. flokki. Ingimundur hefur leikið 7 leiki með KR þetta tímabilið og skoraði eitt mark. Frá félagaskiptunum er greint á heimasíðu Fylkis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert