Guðmundur Atli Steinþórsson, sem hætti hjá 1. deildarliði Fjarðabyggðar í knattspyrnu í gær, gekk í kvöld til liðs við úrvalsdeildarlið KR.
Guðmundur Atli er 21 árs sóknarmaður eða vinstri kantmaður og hafði leikið með Fjarðabyggð í tæp tvö ár en áður með HK og Grindavík. Hann skoraði 3 mörk fyrir Fjarðabyggð í 1. deildinni í sumar.