Þetta voru virkilega dýrmæt stig. Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta yrði erfitt enda hafa Framarar fengið fá mörk á sig í sumar. Við þurftum að hysja upp um okkur buxurnar eftir lélega frammistöðu á móti FH og við sýndum mikla þolimæði í þessum leik," sagði Logi Ólafsson þjálfari KR-inga, við mbl.is eftir sigurinn á Fram í kvöld.
Ítarlega er fjallað um leikinn í 12 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á morgun.