„Enginn í okkar liði var tilbúinn þegar leikurinn byrjaði og við
gjörsamlega gerðum í buxurnar. Við vissum alveg hvernig Fram myndi
spila en vorum ekki tilbúnir til að gera það sem þurfti til,“ sagði Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkur, eftir 2:0-tapið gegn Fram í kvöld.
Þetta er í enn eitt skiptið í sumar sem Grindvíkingum mistekst að landa sigri á heimavelli og Orri Freyr gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir leikinn.
„Þetta var átakanlega lélegt hjá okkur og hreinlega bæjarfélaginu til skammar.“
Ítarlega er fjallað um leikinn í 16 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á morgun.