Framarar unnu í kvöld sannfærandi sigur á Fjölni, 3:1 á Laugardalsvelli í 18. umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Ívar Björnsson skoraði tvö mörk Fram í leiknum og Paul McShane eitt. Fyrir Fjölni var það Kristján Hauksson sem skoraði. Fram hefur nú 31 stig í 4. sæti deildarinnar en Fjölnir er með 22 stig.
Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is
Fram: Hannes Þór Halldórsson - Jón Orri Ólafsson, Auðun Helgason, Reynir Leósson, Sam Tillen - Paul McShane, Heiðar Geir Júlíusson, Halldór Hermann Jónsson, Ívar Björnsson, Joe Tillen - Hjálmar Þórarinsson.
Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Ingvar Þór Ólason, Daði Guðmundsson, Viðar Guðjónsson, Örn Kató Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Almarr Ormarsson.
Fjölnir: Þórður Ingason - Heimir Snær Guðmundsson, Kristján Hauksson, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Magnús Ingi Einarsson – Ágúst Þór Gylfason, Ólafur Páll Johnson, Gunnar Már Guðmundsson – Pétur Georg Markan, Ólafur Páll Snorrason, Tómas Leifsson.
Varamenn: Gísli Magnús Garðarsson, Aron Jóhannsson, Óli Stefán Flóventsson, Davíð Þór Rúnarsson, Andri Valur Ívarsson, Geir Kristinsson.