„Þetta voru mjög kærkomin þrjú stig úr leik sem við vissum að yrði erfiður þar sem Fylkisliðið er ekki úr fallhættu og berst því fyrir hverju stigi sem það getur unnið,“ sagði glaðbeittur Logi Ólafsson, þjálfari KR, eftir sigurinn á Fylki á Fylkisvelli, 2:0, í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld.
Nánar verður fjallað um viðureign Fylkis og KR í Morgunblaðinu í fyrramálið.