Knattspyrnufélagið Fram og Sjóvá skrifuðu í dag undir þriggja ára samstarfssamning en fyrirtækið verður aðal bakhjarl félagsins á þeim tíma og allir flokkar Fram í öllum deildum leika í búningum merktum Sjóvá.
Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá og Kjartan Ragnarsson varaformaður Fram undirrituðu samninginn.