Þorgrímur Þráinsson mun stýra liði Vals í leiknum gegn Íslandsmeisturum FH í Pepsí deildinni á morgun. Stefán Karlsson framkvæmdastjóri Vals staðfesti þetta við mbl.is í dag.
Þorgrímur hefur stýrt Valsliðinu í síðustu tveimur deildarleikjum þar sem Willum Þór Þórsson fráfarandi þjálfari liðsins var erlendis að afla sér menntunar.
Willum lét í dag af störfum og hefur Þorgrímur verið aðstoðarþjálfari hans á þessari leiktíð.