Knattspyrnufélagið Valur tilkynnti rétt í þessu á vef sínum að Willum Þór Þórsson væri hættur störfum sem þjálfari meistaraflokks karla en hann hefur stýrt liðinu frá árinu 2004.
Í yfirlýsingunni segir:
Knattspyrnufélagið Valur og þjálfari meistaraflokks, Willum Þór Þórsson, hafa komist að samkomulagi um að ljúka farsælu samstarfi.
Knattspyrnufélagið Valur óskar Willum velfarnaðar í framtíðinni og þakkar honum fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.
Willum tók við liði Vals haustið 2004, eftir að það hafði tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni eftir eins árs fjarveru. Undir hans stjórn hefur það verið í baráttu um titla undanfarin ár, varð bikarmeistari 2005 og síðan Íslandsmeistari 2007.
Síðasta ár vann liðið deildabikarinn en endaði hinsvegar í 5. sæti úrvalsdeildarinnar og þá olli frammistaðan nokkrum vonbrigðum.
Valsmenn byrjuðu tímabilið illa í vor en höfðu unnið fjóra leiki í röð í deildinni áður en þeir töpuðu illa fyrir Stjörnunni, 3:0, síðasta fimmtudag.
Willum hefur verið erlendis að undanförnu þar sem hann var að ljúka UEFA Pro Licence þjálfaragráðunni og var því ekki við stjórnvölinn í tveimur síðustu leikjum, gegn Stjörnunni og í sigurleik gegn ÍBV, 2:0.
Willum er 46 ára gamall og hefur þjálfað samfleytt undanfarin tólf ár. Hann var með Þrótt í Reykjavík í þrjú ár, Hauka í tvö ár, KR í þrjú ár þar sem liðið varð tvisvar Íslandsmeistari undir hans stjórn, og hann var að verða hálfnaður með sitt fimmta tímabil með Val.
Á síðasta ári var samningur Willums við Val framlengdur til ársloka 2012.