Knattspyrnumennirnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir munu skrifa undir samning við Val um 10 leytið í dag samkvæmt Arnari, en þeir bræður voru leystir undan samningi sem þjálfarar og leikmenn ÍA í vikunni.
„Ég er að fara að hitta stjórnina núna klukkan tíu, og ég stefni á að skrifa undir samning þá við Val. Það er ekki hægt að hætta þessu maður, ekki á þessum nótum að minnsta kosti,“ sagði knattspyrnumaðurinn Arnar Gunnlaugsson, nú fyrir stundu, á leiðinni á Hlíðarenda.
Bræðurnir eru 36 ára gamlir og er búist við að þeir geri eins árs samning við félagið, en það ætti að fást staðfest síðar í dag.
Nánar verður rætt við Arnar í Morgunblaðinu á morgun.