Fram vann í kvöld 5:0 sigur á Keflavík í 15. umferð Pepsídeildar karla í knattspyrnu. Fram er því með 18 stig í sjöunda sæti deildarinnar og Keflavík með 24 stig í fjórða sæti. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Jón Guðni Fjóluson kom Fram á bragðið og Joe Tillen jók muninn í 2:0 á 14. mínútu. Halldór Hermann Jónsson skoraði þriðja og fjórða markið í seinni hálfleik áður en varamaðurinn Guðmundur Magnússon innsiglaði 5:0 sigurinn.
Byrjunarlið Fram: Hannes Þór Halldórsson - Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson, Auðun Helgason, Samuel Tillen, Heiðar Geir Júlíusson, Halldór Hermann Jónsson, Ingvar Þór Ólason, Jón Guðni Fjóluson, Joe Tillen - Hjálmar Þórarinsson.
Varamenn: Almarr Ormarsson, Hlynur Atli Magnússon, Björn Orri Hermannsson, Ragnar Valberg Sigurjónsson, Guðmundur Magnússon, Hörður Björgvin Magnússon, Ögmundur Kristinsson.
Byrjunarlið Keflavíkur: Lasse Jörgensen - Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Alen Sutej - Magnús S. Þorsteinsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Brynjar Örn Guðmundsson - Guðmundur Steinarsson, Símun Samuelsen.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Bessi Víðisson, Magnús Þórir Matthíasson, Magnús Þór Magnússon, Sigurður Gunnar Sævarsson, Sverrir Þór Sverrisson.