ÍBV og Fjölnir áttust við í 16. umferð Pepsideildar karla á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Andri Valur Ívarsson kom Fjölni yfir snemma leiks en Viðar Örn Kjartansson, Andri Ólafsson og Tonny Mawejje skoruðu fyrir ÍBV.
Fylgst var með gangi mála í Eyjum í beinni textalýsingu á mbl.is.
Fjölnismaðurinn Andri Steinn Birgisson og Eyjamaðurinn Andrew Mwesigwa fengu báðir rautt spjald á 88. mínútu.
Byrjunarlið ÍBV: Albert Sævarsson, Andri Ólafsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Yngvi Magnús Borgþórsson, Pétur Runólfsson, Viðar Örn Kjartansson, Andrew Mwesigwa, Tonny Mawejje, Arnór Eyvar Ólafsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson , Ajay Leitch-Smith. Varamenn. Anton Bjarnason, Bjarni Rúnar Einarsson, Egill Jóhannsson, Augustine Nsumba, Gauti Þorvarðarson, Ingi Rafn Ingibergsson, Elías Fannar Stefnisson.
Byrjunarlið Fjölnis: Hrafn Davíðsson, Gunnar Valur Gunnarsson, Ólafur Páll Johnson, Magnús Ingi Einarsson, Jónas Grani Garðarsson, Tómas Leifsson, Andri Steinn Birgisson, Ágúst Þór Ágústsson, Illugi Þór Gunnarsson, Marinko Skaricic, Andri Valur Ívarsson. Varamenn. Þórður Ingason, Aron Jóhannsson, Kristinn Freyr Sigurðsson, Eyþór Atli Einarsson, Vigfús Arnar Jósepsson, Geir Kristinsson, Guðmundur Karl Guðmundsson.