Valur tekur við Íslandsbikarnum

Valsliðið stillir sér upp með Íslandsbikarinn.
Valsliðið stillir sér upp með Íslandsbikarinn. mbl.is/Kristinn

Valskonur tóku rétt í þessu við Íslandsbikarnum í knattspyrnu fjórða árið í röð en þær tryggðu sér meistaratitilinn fyrir stundu með því að vinna Keflavík, 10:0, í næstsíðustu umferð úrvalsdeildarinnar.

Þær eru komnar með 41 stig en þrjú næstu lið, Breiðablik, Þór/KA og Stjarnan sem unnu öll í dag eru með 36 stig. Þetta var síðasti heimaleikur Vals á tímabilinu og Íslandsbikarinn fór því á loft.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert