Kristján Guðmundsson verður ekki áfram þjálfari knattspyrnuliðs Keflvíkinga eftir að hafa stýrt því undanfarin fimm ár. Þetta var niðurstaðan á stjórnarfundi knattspyrnudeildar Keflavíkur sem lauk fyrir stundu.
Útlit er fyrir að Willum Þór Þórsson verði næsti þjálfari liðsins og það verður jafnvel formlega tilkynnt síðar í kvöld.