Alls voru 32 leikir í Pepsi-deild karla í knattspyrnu sýndir í beinni útsendingu í áskriftarsjónvarpi hjá Stöð 2 Sport á sl. sumri. Ekki er ljóst hvaða fyrirtæki mun sýna frá Íslandsmótinu á næsta ári en samningar íslensku sjónvarpsstöðvanna við rétthafa renna út um áramótin.
Kristín Hálfdánardóttir, yfirmaður íþróttadeildar RÚV, sagði í gær að viðræður við Sportfive væru á byrjunarstigi en hún vonast til þess að niðurstaða fáist í lok ársins.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.