Framarar komnir í undanúrslitin

Almarr Ormarsson skoraði sigurmarkið.
Almarr Ormarsson skoraði sigurmarkið. mbl.is/Eggert

Framarar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu með því að sigra Leikni R., 1:0, í lokaumferð B-riðilsins í Egilshöllinni.

Framarar luku því keppni í riðlinum með 7 stig en Leiknir fékk eitt stig. Fylkir er með 4 stig og Fjölnir eitt stig og liðin mætast á sunnudagskvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitunum. Fjölnir þarf að vinna þann leik með tveggja marka mun, annars fara Fylkismenn áfram.

Það var Almarr Ormarsson sem skoraði sigurmark Framara í kvöld þegar um tíu mínútur voru til leiksloka, eftir sendingu frá Alexander Veigari Þórarinssyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert