Valsmenn eiga harma að hefna

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson úr FH og Atli Sveinn Þórarinsson úr …
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson úr FH og Atli Sveinn Þórarinsson úr Val eigast við. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valsmenn eiga harma að hefna gegn Íslandsmeisturum FH en liðin mætast í opnunarleik Pepsi-deildarinnar á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda í kvöld klukkan 19.15.

Á síðustu leiktíð þegar liðin áttust við á Vodafone-vellinum unnu FH-ingar stórsigur, 5:0. Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö marka FH í þeim leik og Davíð Þór Viðarsson eitt en báðir eru þeir horfnir á braut, Tryggvi til ÍBV og Davíð Þór til Öster.

FH hafði einnig betur í síðari viðureign liðanna sem fram fór í Kaplakrika en þeim leik lyktaði með 2:0 sigri Hafnarfjarðarliðsins.

FH og Valur voru saman í riðli í deildabikarnum, Lengjubikarnum, í vetur og í viðureign liðanna í Egilshöllinni hafði FH betur, 3:0.

Markatalan er því 10:0, FH í vil, í þremur síðustu mótsleikjum liðanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert