Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið ákveðið að ÍBV og Valur víxli heimaleikjum sínum og mætist á Vodafonevellinum að Hlíðarenda á mánudagskvöldið. Þau mætast því ekki í Eyjum í dag eins og til stóð.
Ljóst varð í morgun að Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum væri óleikfær vegna öskufalls. Því verða það Eyjamenn sem koma í land og mæta Val að Hlíðarenda klukkan 19.15 á mánudagskvöld.