Eiður Aron Sigurbjörnsson, miðvörðurinn ungi í liði Eyjamanna, skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum við knattspyrnudeild ÍBV til ársins 2013. Frá þessu var greint á vef Eyjafrétta.
Eiður Aron er tvítugur og kom inní lið ÍBV á síðasta sumri þegar hann lék 19 leiki í úrvalsdeildinni og skoraði 2 mörk. Í sumar hefur hann spilað alla sex leiki ÍBV í deildinni og skorað eitt mark, í 3:2 sigrinum á Íslandsmeisturum FH.