FH vann 4:0 sigur á KR í úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu í kvöld og tryggði sér þar með sinn annan bikarmeistaratitil í sögunni. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik úr vítaspyrnum sem voru býsna umdeildar en voru báðar réttilega dæmdar. Þær virtust hins vegar draga vígtennurnar úr KR-ingum sem sýndu ekki sitt rétta andlit í seinni hálfleiknum. Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason bættu svo við mörkum eftir leikhléið og tryggðu FH sinn annan bikarmeistaratitil á fjórum árum.
Lið FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Guðmundur Sævarsson, Freyr
Bjarnason, Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðsson, Björn Daníel
Sverrisson, Pétur Viðarsson, Matthías Vilhjálmsson, Ólafur Páll
Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli Guðnason.
Varamenn: Gunnar Már Guðmundsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson,
Torger Motland, Gunnar Sigurðsson, Hafþór Þrastarson, Einar Karl
Ingvarsson, Helgi Valur Pálsson.
Lið KR: Lars Ivar Moldskred, Skúli Jón Friðgeirsson, Mark
Rutgers, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson,
Kjartan Henry Finnbogason, Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Óskar
Örn Hauksson, Guðjón Baldvinsson, Björgólfur Takefusa.
Varamenn: Þórður Ingason, Dofri Snorrason, Viktor Bjarki
Arnarson, Egill Jónsson, Gunnar Örn Jónsson, Eggert Rafn Einarsson,
Jordao Diogo.