Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Vals var birt á heimasíðu félagsins í kvöld þar sem fréttir af þjálfaramálum félagsins eru sagðar úr lausu lofti gripnar.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Reykjavík, 25.8.2010
Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Vals
Stjórn knattspyrnudeildar Vals vill taka fram að frétt íþróttadeildar
RÚV um þjálfaramál félagsins er úr lausu lofti gripin og tilhæfulaus
með öllu, Gunnlaugur Jónsson er þjálfari meistaraflokks karla og ekki
hefur verið leitað til annarra aðila.
f.h. knattspyrnudeildar Vals,
E. Börkur Edvardsson
formaður