Jóni Guðna Fjólusyni, miðverði Fram og 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið boðið til reynslu hjá þýska stórliðinu Bayern München. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Jón Guðni er á leið til PSV Eindhoven í Hollandi innan skamms, þegar hann verður búinn að jafna sig eftir botnlangauppskurð, sem varð til þess að hann missti af tveimur síðustu umferðum Íslandsmótsins og leikjunum tveimur gegn Skotum í umspili Evrópukeppni 21-árs landsliða.