Ásgeir Aron Ásgeirsson samdi í dag við 1. deildarlið HK í knattspyrnu til næstu þriggja ára en hann spilaði með Eyjamönnum í úrvalsdeildinni í sumar.
Ásgeir Aron er 24 ára gamall, miðju- eða varnarmaður, og spilaði 14 leiki með Eyjamönnum í deildinni. Hann lék þar á undan með Fjölni í fjögur ár, þar af tvö síðari árin í úrvalsdeildinni, og spilaði þar 34 leiki og skoraði 2 mörk.