KR hafði betur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks, 4:0, í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu en liðin áttust við í Egilshöllinni í kvöld. Guðjón Baldvinsson, Ásgeir Örn Ólafsson, Óskar Örn Hauksson og Kjartan Henry Finnbogason skoruðu mörk KR-inga.
KR hefur þar með unnið báða leiki sína í 1. riðlinum en Blikarnir hafa tapað báðum leikjum sínum.