Miðjumaðurinn Atli Jóhannsson og framherjinn Ólafur Karl Finsen missa væntanlega af fyrstu sjö umferðum Íslandsmótsins með Stjörnunni. Þetta kemur fram á Fótbolta.net í dag, haft eftir Bjarna Jóhannssyni þjálfara Garðabæjarliðsins.
Bæði Atli og Ólafur hafa gengist undir aðgerðir á nára í þessum mánuði og verða væntanlega rúmlega tvo mánuði að verða leikfærir að nýju.
Sjö umferðir eru leiknar í deildinni frá 1. maí til 6. júní en þeir félagar verða þá væntanlega klárir í slaginn þegar keppni hefst á ný eftir þriggja vikna hlé undir lok júnímánaðar.
Atli lék 18 leiki með Stjörnunni í úrvalsdeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Ólafur lék 15 leiki og skoraði 4 mörk, þar af þrennu í 5:0 sigri Garðabæjarliðsins á Haukum.