Fótboltavellirnir á suðvesturhorninu eru snævi þaktir þessa stundina en á nokkrum þeirra eiga að fara fram leikir í Pepsi-deild karla annað kvöld og á mánudagskvöldið.
Ljósmyndari mbl.is tók þessa mynd á Vodafonevellinum að Hlíðarenda nú síðdegis en þar taka Valsmenn á móti FH eftir tæplega tvo sólarhringa, klukkan 19.15 á mánudagskvöldið.
Völlurinn er upphitaður og ræður því væntanlega við þessa ofankomu.