Valsmenn hafna kvörtun KR-inga

Ingólfur Sigurðsson.
Ingólfur Sigurðsson.

Knattspyrnudeild Vals hefur hafnað kvörtun knattspyrnudeildar KR til KSÍ vegna máls Ingólfs Sigurðssonar. KR-ingar kvörtuðu yfir því að Valsmenn hefðu haft samband við Ingólf á ólöglegan hátt.

Yfirlýsing sem Valsmenn sendu frá sér hljóðar þannig:

„Knattspyrnudeild Vals hafnar alfarið kvörtun knattspyrnudeildar KR um að hafa brotið 14.13 gr. reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga. Hvorki Freyr Alexandersson né neinn annar á vegum deildarinnar hafði samband við samningsbundinn leikmann KR, Ingólf Sigurðsson.

Mál Ingólfs og knd. KR er innanhússvandi þess annars ágæta félags. Kvörtunin virðist þannig  hönnuð til þess að dreifa athyglinni frá málinu og væri hlutaðeigandi nær að líta í eigin barm.

Stjórn knd. Vals vill einnig taka fram að það hryggir hana að stjórn knd. KR hafi valið að leggja fram kvörtun til KSÍ nokkrum klukkustundum fyrir aldarafmæli Vals. Stjórn knd. KR hefur þannig valið að varpa skugga á ágætt samstarf félaganna í gegnum árin. Það er ekkert í þessu máli sem ekki mátti bíða í rúman sólarhring. Samskiptafærni og virðing fyrir öðrum er auðlærð, ef vilji er fyrir hendi.

Knattspyrnudeild Vals vísar því kvörtun KR til föðurhúsanna. Valur hefur í engu brotið reglur KSÍ.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert