Leik Þórs og FH í Pepsi-deild karla í knattspyrnu sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað um rúman sólarhring. Samkvæmt KSÍ verður hann leikinn á Þórsvellinum annað kvöld kl. 19.15.
Þórsvöllurinn var í leikhæfu ástandi en vegna eldgossins í Grímsvötnum í Vatnajökli hefur öllu innanlandsflugi verið aflýst í dag og það er ástæða þess að leiknum er frestað.