Alexander: Æft þetta frá því í 3. flokki

Bakvörðurinn Alexander Magnússon gerði glæsilegt mark úr vítaspyrnu í gær þegar Grindavík vann Þór 4:1. Hann sagði þetta enga tilviljun, hann hefði æft þetta frá því í 3. flokki.

Alexander hljóp að boltanum og virtist ætla að spyrna með hægri, en skaut þess í stað með vinstri í síðasta skrefinu, utanfótar í bláhornið hægra megin. „Þetta var ákveðið en ef við hefðum ekki verið í svona góðri stöðu hefði ég tekið spyrnuna með hægri,“ viðurkenndi hann eftir leik.

Grindvíkingar unnu góðan sigur í kvöld.
Grindvíkingar unnu góðan sigur í kvöld. mbl.is/Víkurfréttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert