Orri Freyr: Þórsarar þáðu ekki tækifærin

Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkur, lék lengi með Þór og hann sagðist feginn að hans gamla lið skyldi ekki þiggja færin sem hann færði þeim á silfurfati í fyrri hálfleik.

„Það er ekki að furða þó maður ruglist aðeins, ég spilaði með Þór í ein fimmtán ár,“ sagði fyrirliðinn kátur í leikslok, en játaði þó að hann hafi verið feginn að hans gamla lið skyldi ekki nýta sér þau tvö færi sem hann færði þeim fyrir hlé.

Grindavík vann leikinn í kvöld, 4:1.

Orri Freyr Hjaltalín .
Orri Freyr Hjaltalín . mbl.is/hag
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert