KR á að fara áfram og ÍBV á þokkalega möguleika. Breiðablik á erfitt en ekki óleysanlegt verkefni fyrir höndum en FH fékk einu sinni enn of sterka mótherja. Komist KR og ÍBV í gegnum 1. umferðina eiga liðin sáralitla möguleika gegn andstæðingunum þar.
Þetta er heildarmatið á væntanlegum andstæðingum íslensku liðanna í Evrópumótum félagsliða en dregið var til fyrstu umferðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar UEFA í gær.
Ítarlega umfjöllun um andstæðinga íslensku liðanna er að finna í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.