„Menn eru frekar hátt uppi enda vorum við að senda Íslandsmeistarana sjálfa út úr keppninni! Að hafa skorað sjálfur tvö mörk og að við skulum hafa skorað fjögur gegn þeim er bara frábært í alla staði,“ sagði Sölvi G. Gylfason, ein af hetjum 1. deildarliðs BÍ/Bolungarvíkur sem sló út Breiðablik fyrir vestan í 16 liða úrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi með ótrúlegum 4:1 sigri á Torfnesvelli.
Nánar er rætt við Sölva í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.