Þrír leikir fara fram í 8. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í dag og í kvöld. Klukkan 17 mætast Fylkir og Þór í Árbænum og klukkan 19.15 leiða Valur og Víkingur saman hesta sína á Vodafone-vellinum og í Grindavík taka heimamenn á móti toppliði KR.
Áttundu umferðinni lýkur svo annað kvöld en þá mætast Íslandsmeistarar Breiðabliks og Keflavík í Kópavogi og Framarar fá FH-inga í heimsókn á Laugardalsvöllinn.