Magnús Þórisson hefur staðið sig best í dómgæslunni í fyrstu átta umferðunum í Pepsi-deild karla, að mati Morgunblaðsins. Magnús hefur fengið bestu einkunnir fyrir leiki sína hjá íþróttafréttamönnum blaðsins en meðaleinkunn hans fyrir sex leiki í deildinni er 7,17.
Morgunblaðið gefur dómurum einkunnir fyrir sína frammistöðu í öllum leikjum í deildinni, frá einum og uppí tíu. Einkunnagjöf blaðsins var breytt fyrir þetta tímabil en áður var gefið frá einum og uppí sex.
Í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag má sjá einkunnir allra dómaranna í fyrstu átta umferðunum.