ÍBV hafnar öðru tilboði í Eið Aron

Eiður Aron Sigurbjörnsson úr ÍBV t.v.
Eiður Aron Sigurbjörnsson úr ÍBV t.v. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

ÍBV hafnaði í morgun tilboði frá sænska úrvalsdeildarliðinu Örebro í Eið Aron Sigurbjörnsson. Þetta er í annað sinn á innan við viku sem Eyjamenn hafna tilboði í varnarmanninn sem vakið hefur verðskuldaða athygli í Pepsi-deild karla í sumar og í fyrra.

Eftir því sem fram kemur á vef Eyjafrétta hafa tilboð Örebro verið of lág að mati forráðamenn ÍBV. Þar segir ennfremur að annað sænskt úrvalsdeildarlið hafi sýnt áhuga á Eiði Aroni en nafn þess er ekki getið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka