Guðjón Þórðarson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, sagði í viðtali við Stöð2 Sport að loknum undanúrslitaleik félagsins á móti KR að betra liðið hafi unnið en KR vann 4:1.
Guðjón sagðist hafa verið nokkuð sáttur við hvernig leikurinn þróaðist og KR hafi ekki fengið mörg færi framan af í síðari hálfleik. Hann sagði hins vegar að einbeitingarleysi hafi gert vart við sig hjá hans mönnum og KR hafi refsað fyrir það. Guðjón sagði KR-liðið vera vel skipulagt og vel mannað og þeir nýti sér tækifærin sem bjóðast.
Guðjón sagði jafnframt að KR hafi skorað þriðja markið á meðan hann var að undirbúa skiptingu til að freista þess að sækja í stöðunni 1:2.