Danski miðjumaðurinn Jesper Holdt Jensen, sem leikur með Stjörnunni, verður ekki meira með liðinu á þessari leiktíð.
Samkvæmt frétt á fotbolti.net meiddist Jensen í 5:1 sigri Stjörnunnar á Þór á dögunum og staðfestir Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, að líklega sé Jensen með slitið krossband.