KR-ingar styrktu stöðu sína í toppsæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu með því að leggja Þórsara, 2:1, á Akureyri í kvöld. KR-ingar voru 1:0 undir í hálfleik en þeim tókst að knýja fram sigur og skoraði Grétar Sigfinnur Sigurðarson sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok en þá voru KR-ingar manni færri eftir að Kjartani Henry Finnbogasyni var vikið af velli.
Þór: Srdjan Rajkovic - Gísli Páll Helgason, Þorsteinn Ingason, Janez Vrenko, Ingi Freyr Hilmarsson, Alexandar Linta, Gunnar Már Guðmundsson, Clark Keltie, Atli Sigurjónsson, Jóhann Helgi Hannesson, Sveinn Elías Jónsson.
Varamenn: Björn Hákon Sveinsson, Atli Jens Albertsson, Ármann Pétur Ævarsson, Dávid Disztl, Sigurður Marinó Kristjánsson, Baldvin Ólafsson, Ragnar Hauksson.
KR: Hannes Þór Halldórsson - Magnús Már Lúðvíksson, Grétar S. Sigurðarson, Aron Bjarki Jósepsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Baldur Sigurðsson, Viktor Bjarki Jóepsson, Björn Jónsson, Kjartan Henry Finnbogason, Guðjón Baldvinsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson.
Varamenn: Atli Jónasson, Bjarni Guðjónsson, Egill Jónsson, Gunnar Örn Jónsson, Dofri Snorrason, Torfi Karl Ólafsson, Davíð Einarsson.