Guðmundur Reynir hjá Brann

Guðmundur Reynir Gunnarsson.
Guðmundur Reynir Gunnarsson. mbl.is

Guðmundur Reynir Gunnarsson, bakvörðurinn skæði í liði KR, er kominn til Noregs þar sem hann verður til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Brann. Guðmundur kom til Bergen í gærkvöld og æfir með liðinu í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Brann.

Einn Íslendingur er í herbúðum Brann, landsliðsmaðurinn Birkir Sævarsson. Margir íslenskir knattspyrnumenn hafa hins vegar leikið með liðinu og á tímabili voru þeir fimm á sama tíma.

Guðmundur Reynir er 22 ára gamall og hefur verið einn af bestu leikmönnum Pepsi-deildarinnar í ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert