Christiansen samdi við ÍBV

Rasmus Christiansen, annar frá hægri, við undirskriftina í dag en …
Rasmus Christiansen, annar frá hægri, við undirskriftina í dag en tveir yngri leikmenn félagsins sömdu á sama tíma. www.eyjafrettir.is

Eyjamenn sömdu í dag við danska knattspyrnumanninn Rasmus Christiansen um að leika áfram með liði þeirra á næsta keppnistímabili. Skrifað var undir samninginn nú síðdegis en frá þessu er greint á vef Eyjafrétta.

Christiansen, sem er 22 ára gamall, er að ljúka sínu öðru tímabili með Eyjamönnum. Hann hefur leikið alla 43 leiki liðsins í úrvalsdeildinni síðan hann kom til þeirra fyrir 2. umferðina vorið 2010 og verið einn af sterkustu miðvörðum deildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert