Keflvíkingar eru í þjálfaraleit en Willum Þór Þórssyni var tilkynnt í gær að samningur hans við félagið verði ekki framlengdur. Willum hefur stýrt Keflavíkurliðinu undanfarin tvö ár.
„Okkur fannst kominn tími á þetta samstarf við Willum og því var ákveðið að semja ekki við hann,“ sagði Þorsteinn Magnússon, formaður- og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur, við Morgunblaðið. Zoran Daníel Ljubicic og Gunnar Oddsson hafa strax verið orðaðir við þjálfarastarfið og staðfesti Þorsteinn að þeir kæmu sterklega til greina. „Það væri gaman að geta stillt upp góðu Keflavíkurliði með Keflavíkurþjálfara,“ sagði Þorsteinn.
gummih@mbl.is