Knattspyrnumaðurinn Ragnar Leósson er genginn í raðir ÍBV frá ÍA. Ragnar, sem er tvítugur sóknar- eða miðjumaður, samdi við Eyjamenn til þriggja ára.
Ragnar átti sinn þátt í að koma ÍA upp í Pepsideildina í sumar en hann skoraði tvö mörk í 13 leikjum fyrir Skagamenn í sumar. Hann á að baki 60 leiki fyrir Skagamenn og hefur skorað í þeim 10 mörk.
Áður hafði ÍBV fengið til sín framherjann Eyþór Helga Birgisson.