Gunnar Már til liðs við ÍBV

Gunnar Már Guðmundsson í leik á móti Fram í sumar.
Gunnar Már Guðmundsson í leik á móti Fram í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Ég hef ekki skrifað undir samning ennþá en eins og staðan er núna þá eru yfir níutíu prósent líkur á að ég gangi til liðs við ÍBV á næstu dögum,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gunnar Már Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Gunnar, sem var leigður til Þórs á Akureyri frá FH á síðustu leiktíð Pepsi-deildarinnar mun hafa kvatt félaga sína í FH síðdegis í gær þar sem hann er leið til ÍBV.

Gunnar Már á eitt ár eftir af samningi sínum við FH en ÍBV mun kaupa hann undan þeim samningi og hlaupi ekki snurða á þráðinn þá skrifar Gunnar Már undir þriggja ára samning við ÍBV fyrir jólin.

Nánar um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert